Hreyfing fyrir líkama og líðan
Hreyfing er ein af þeim venjum sem geta stutt við bæði heilsu okkar og lífsgæði. Hún hjálpar okkur að viðhalda getu til að takast á við dagleg verkefni, njóta þess sem okkur finnst skemmtilegt og halda áfram að gera það sem skiptir okkur máli.
Ávinningurinn snýst um meira en útlit eða árangur í íþróttum. Hreyfing getur gefið okkur betri líðan, meiri styrk og aukið svigrúm til að njóta lífsins.
Líkami sem styður okkur í daglegu lífi
Regluleg hreyfing styrkir hjarta og blóðrás og getur bætt þol. Með tímanum geta hversdagsleg verkefni, eins og að ganga upp tröppur eða bera innkaupapoka, orðið auðveldari.
Styrktaræfingar hjálpa okkur að viðhalda vöðvastyrk og styðja við beinheilsu. Jafnvægis- og fjölbreyttar hreyfiæfingar geta einnig hjálpað okkur að varðveita færni og sjálfstæði þegar árin færast yfir.
Hreyfing styður við blóðþrýstings- og blóðsykursstjórnun og dregur úr áhættu á meðal annars hjarta- og æðasjúkdómum og sykursýki af tegund 2. Ávinningurinn getur verið til staðar þótt líkamsþyngdin breytist ekki.
Rými fyrir betri andlega líðan
Hreyfing getur verið leið til að losa um spennu, taka hlé frá áhyggjum og beina athyglinni að líkamanum og því sem við erum að gera hér og nú. Sum finna mun á líðan eftir eina hreyfistund, en hjá öðrum kemur ávinningurinn smám saman með reglulegri iðkun.
Rannsóknir sýna að hreyfing getur dregið úr einkennum kvíða og þunglyndis. Hún getur líka stutt við svefn, minni og hugsun. Áhrifin eru þó einstaklingsbundin; við þurfum ekki öll að upplifa sömu vellíðan eða finna strax fyrir breytingu.
Að finna hreyfingu sem okkur líkar og taka eftir eigin framförum getur jafnframt gefið okkur ánægju og trú á eigin getu. Framfarir geta verið að treysta sér í lengri göngu, finna meiri styrk eða einfaldlega ná að skapa reglulega stund fyrir sjálfan sig.
Hreyfing getur líka verið samvera
Göngutúr með samstarfsfélaga, sundferð eða sameiginleg æfing getur skapað tækifæri til að spjalla, hlæja og kynnast. Hreyfingin verður þá stund sem við njótum saman og getum hlakkað til.
Það þarf ekki að byrja stórt. Hreyfing á að geta tekið mið af aldri, getu, áhuga og aðstæðum hvers og eins. Stuttur göngutúr, æfingar í stól, sund eða dans geta öll verið hluti af virkari hversdegi.
Markmiðið er að finna leið sem hentar þér og byggja upp venju sem gefur þér eitthvað gott — bæði núna og til framtíðar.